Þagnarmúrinn rofinn!

Komið þið sæl.

Ég fagna því að kominn kominn er hópur sem tilbúinn er að rjúfa þagnarmúrinn um hættur Fjarðarheiðinnar. Að mínu mati er það ein af ástæðunum fyrir því að við erum ekki komin lengra í baráttunni um bættar samgöngur þ.e.s. við höfum allt of lengi haldið því á lofti að það sé allt í lagi með Fjarðarheiði. Ég veit ekki hvers vegna. En ég veit  að  aðrir sem  fengið hafa úrbætur á sínum Samgöngum s.b. Héðinsfjarðarg, Vaðlaheiðarg, Bolungarvíkurg, Norðfjarðarg, Og það má nefna fleiri göng hafa fengið þessar úrbætur inn á vegaáætlun vegna þess að yfirvöldum hefur m.a. verið komið í skilning um að þessar leiðir séu stórhættulegar.

Ég vona svo sannarlega að allar fréttir af ófærð, slysum, óhöppum og öllum dögum sem Fjarðarheiði er lokuð yfir nótt rati í fjölmiðla eða inn á nýju heimasíðunna.  Og takið eftir,  Fjarðarheiði telst ekki lokuð ef hún er opinn frá kl.7:00 að morgni til kl. 21:00 að kveldi samkvæmt skilgreiningum vegagerðarinnar.

Ég styð að sjálfsögðu þetta framtak og vona  að þetta verði til þess að Samgöng verði að veruleika.

Baráttukveðjur

Gulla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband